Britten

Velkomin(n)

28.02.2010 22:09:39 / thorunna

Bloggað á ný!

Sá að Eva Laufey mágkona er farin að blogga þannig að mér datt í hug að kíkja á gömlu blogg síðuna okkar.... og hún er ennþá hér!!! Svo sem ekki mikið um að vera hérna enda ritstjórarnir búnir að vera mjög uppteknir við að  sinna barneignum, flutningum og meiri flutningum ...svo fátt eitt sé nefnt :)  og fyrst við erum enn og aftur stödd hér á Bretlandseyjum er kannski bara tilvalið að taka upp þráðinn á ný og reyna að blogga svonaeinsogeinusinniíviku eða svo... :)  

 Það vill nú svo skemmtilega til að á morgun 1.mars er nákvæmlega eitt ár síðan húsfaðirinn flutti til Maidenhead! Hann unir sér vel í fiskibransanum. Þeysist hingað og þangað um heiminn í góðri von um sölu. Reynir eftir bestu getu að mæta í fótbolta með The Old Boys á föstudagskvöldum og sinnir fjölskyldunni þess á milli. Við hin erum hins vegar búin að vera hérna í 6 mánuði!  Aðlögun allra hefur bara gengið vel. Haraldur spilar fótbolta með skólaliðinu á mánudögum. Þeir komust í úrslit í skólakeppninni en töpuðu því miður úrslitaleiknum og lentu í 2. sæti.  Hann spilar einnig með Holyport FC ásamt fleiri skólafélögum.  Þeir eru komnir í undanúrslit í bikarkeppninni, ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg með það á hreinu hvar þeir eru staddir í deildarkeppninni en þeir eru frekar ofarlega .....held ég ....það bara hlýtur að vera  :d  

Rannveig Katrín er líka football crazy og spilar fótbolta með Maidenhead Boys & Girls FC . Þeim fer fram, töpuðu dálítið til að byrja með en núna er þetta allt að koma hjá þeim.  Þær hafa unnið núna 2 leiki í röð, leikurinn í gær fór 5-3 og voru þær að keppa við besta liðið í þeirra deild að þeirra sögn ;)  Katrín er nýbyrjuð í skátunum og nefnist hennar deild The Cubs. Hún er eina stelpan í hópnum en hún kippir sér ekkert upp við það og fer á fundi með bros á vör og brosir svo hringinn þegar komið er að sækja hana ....ekki af því að hún er svo ánægð að komast heim heldur er það af því að það er svo gaman á fundum!! Hún verður formlega vígð á þriðjudaginn næsta.  Katrín er einnig í skólakórnum. Hún ætlar að syngja með kórnum sínum í The Royal Albert Hall í London 16. mars nk. Spennandi J

Hekla er farin að tala svolitla ensku! Það er mjög gaman að fylgjast með hvernig henni fer fram frá viku til viku. Alltaf bætist við orðaforðann og fara nú sumir leikir heimafyrir fram á ensku.  Hún æfir fimleika einu sinni í viku með vinkonu sinni Milan. Þær stöllur hittast reglulega og leika heima hjá hvorri annarri í hverri viku. Allt mjög skipulagt hér í Bretlandinu.  Það er nú ekki hægt að segja að lítið fari fyrir skapi stúlkunnar.  En móður hennar þótti mjög miður að skila vinkonunni heim einn daginn allri útklóraðri og klippinni :/    Það styttist í að hún byrji í skólanum. Fyrsti skóladagurinn er 20. apríl. Hún verður fyrstu 6 mánuðina hálfan daginn og byrjar þá væntanlega allan daginn í janúar á næsta ári. 

Ísleifur er geðgóður og brosmildur sem fyrr. Er þó farinn að sýna annað slagið kunnuglega takta sem hann væntanlega tekur upp frá systur sinni ....hehehe það er þó alltaf stutt í góða skapið!  Honum finnst mjög gaman að segja sögur og talar mikið, það skilst samt ekki alveg allt sem hann segir. Hér eru nokkrar orðaskýringar:  Hútt = heitt. Lekka = drekka.  Dúddi = pabbi (pabba hans til mikilla ama... hehehe)  Sobbí = Soffía en Soffía er aupairinn okkar, indælis stúlka, geðgóð, og prúð frá Neskaupsstað. 

Af húsmóðirinni er allt gott að frétta hún hendist þetta með börnin til og frá skóla, skellir sér í leikfimi annað veifið og stundar kaffihúsin meira en góðu hófi gegnir..... nei nei hún lítur þar við annað slagið í góðra vina hópi ;)  Stundar enskunámskeið einu sinni í viku og reynir eftir bestu getu að forðast árekstra og haga sér vel í umferðinni.  Ekki það að hún sé einhver ökuníðingur ....langt því frá en það gerðist smá óhapp um daginn. Hún keyrði á konu.... ekki bókstaflega á konu heldur á annan bíl sem kona keyrði.  Hún (húsfreyjan sko) var semsagt í sakleysi sínu að keyra börnin í skólann, var nánar tiltekið fyrir utan skólann þegar bíll, sem er parkeraður vinstra megin á götunni, keyrir út úr stæðinu og húsfreyjan skall beint á hægra framdekkið hjá konunni. Konu greyjið gat ekki keyrt bílinn sinn því að stýrisbúnaðurinn virkaði ekki en ég slapp með smá rispu.

Við skiptumst á símanr, bílanr og helstu upplýsingum en það leið ekki langur tími frá því að ég kvaddi konuna að hún hringir í mig og spyr mig hvort ég vilji fara í gegnum tryggingarnar eða hvort ég vilji borga henni viðgerðina “in cash” og hafa þetta okkar á milli.... bwaaa... ég missti málið í örfáar sekúndur vegna ósvífni hennar en sagði svo með minni stóískri ró að best væri að þetta færi í gegnum tryggingarnar ;) ....og hef ég hvorki séð né heyrt af konunni síðan en ég sá að bíllinn hennar var í marga daga fyrir utan skólann áður en hann var fluttur af vettvangi.

 

Jæja  nóg af mér og mínum í bili....

Megi komandi vika/ur verða ykkur gæfurík/ar J

 

 

 

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 23:06:57 / thorunna

Stelpupartý ofl.

Það er aldeilis að vikan líður hratt!!  Allt fer þetta vel af stað hjá fólkinu í Árkvörninni. Krakkarnir er mjög ánægð í skólanum. Það er mikil breyting fyrir húsmóðirina að þurfa ekki að keyra þau í skólann á hverjum degi og sækja.  Í Englandi var þeim fylgt alveg upp að dyrum og maður fór ekki af skólalóðinni fyrr en kennarinn kom og leiddi bekkinn inn í skólastofuna. Núna er maður bara kysstur bless í dyragættinni!  Þau eru samferða Leó frænda á neðri hæðinni í skólann.  Haraldur hefur mikla ábyrgðartilfinningu og beið eftir Katrínu og Leó í lok fyrsta skóladags, hann ætlaði að sjálfsögðu að fylgja þeim heim.  Katrín kom fyrst heim með bros á vör og tilkynnti mér glöð að hún hefði bara labbað sjálf heim. Leó er aðeins lengur en þau í skólanum því hann fer í dagvistun.  Haraldur kom svo stuttu seinna ekki glaður með það að Katrín hafi farið heim á undan honum.  Daginn eftir gerðist það sama.  Haraldur kom síðastur heim alls ekki glaður með það að systir hans færi svona heim á undan honum.  Og núna las hann henni pistilinn....  ekki stóð á svarinu hjá systir hans:  “ hvað er þetta, ég vil bara fá að labba í friði....”  En það þykir mikið þroskamerki í þeirra augum að geta labbað heim úr skólanum og það einn með sjálfum sér!!  

 

Húsfreyjan hefur nú hafið störf sem skólahjúkrunarkona! Og líkar vel! Hún er að vísu frekar þreytt þessa dagana (aldrei þessu vant ;))  en ánægð.  Þar sem húsmóðirin er farin að vinna hefur álagið heimafyrir heldur betur aukist hjá húsföðurnum og hefur hann eftir tveggja vikna starf frúnnar pantað sér far til Madrid í húsfeðraorlof J  heldur hann á vit ævintýranna í vikulok!  Hann ætlar að dusta rykið af takkaskónum og rifja upp alla gömlu fótboltataktana með öðrum fótboltapeyjum úr bankanum J  Haraldur er afar stoltur af pabba sínum þessa dagana og segir öllum sem heyra vilja að pabbi hans sé byrjaður í Kaupþingsliðinu og að þeir séu næstbesta liðið á Íslandi!!   

 

Í kvöld er Haraldur og Leó í strákapartýi heima hjá Baldri frænda í Löngumýrinni.  Það var því ekkert annað að gera enn að flauta á stelpupartýi fyrir frænkurnar á höfuðborgarsvæðinu.  Í þessum skrifuðu orðum eru Rannveig Katrín, Margrét og Birta að horfa á Willy Wonka eða Charlie And The Chocolate Factory og úða í sig nammi í kílóavís!!!  Svo á að hreiðra um sig í herbergi Haraldar og sofa saman!

Stelpurnar í Stelpupartýinu!! Margrét, Hekla, Rannveig Katrín og Birta!       

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 23:16:43 / thorunna

Þagnarmúrinn rofinn ;)

“Er ekki tími tilkominnað blogga..... blogga , blogggaaaaaaaaaaa.......” 

 

Við fyrrverandi Húllarar höfum ekki þurft að kvarta yfir veðrinu hérna á klakanum í sumar, brakandi blíða hefur einkennd íslenska sumarið þetta árið.  Við höfum haft í nógu að snúast og haft það alveg ljómandi gott.  Sumarið leið alltof fljótt, nú er farið að rigna og vindur farinn að blása........ brrrrrrr... reyndar er ágætlega hlýtt enþá en maður finnur alveg að haustið er að bresta á!! Skólarnir verða settir á morgun og svo er mæting samkvæmt stundaskrá á fimmtudag J Haraldur og Rannveig Katrín eru yfir sig spennt að byrja í Ártúnsskóla.  Skólatöskurnar bíða tilbúnar með öllu sem til þarf ;) 

  

 

Við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir hérna í Árkvörninni...... loksins.  Það var tekið upp úr síðustu kössunum fyrir helgina!!!  Að vísu eru bæði bílskúr og geymsla troðfull af dóti og kössum ;)  Seinnitíma vandamál!

Svaka stuð þegar var verið að pakka í kassa í vor!

Búslóðinni komið fyrir í gámnum góða!! Bílstjórinn var snar í snúningum eða þannig ;) (snýr baki í myndavélina) en þarna stóð hann í 2 klst. meðan við íslensku Húllararnir skutluðum dótinu í gáminn!! Englendingarnir gera sko ekkert fyrir neinn sem gera ekki neitt fyrir neinn ;)  Takk enn og aftur húllarar fyrir hjálpina, hefðum aldrei getað gert þetta án ykkar hjálpar!  

 

 

Hekla skrudda tók fyrstu skrefin 13 mánaða og hefur ekki stoppað síðan.  Hún labbar um allt og tætir og gramsar að sjálfsögðu allt sem hún nær í.  Hún byrjar hjá dagmömmu eftir viku.  Dagmamman býr hérna rétt hjá okkur, aðeins 2 mín labb.  Hún er ekki farin að tala mikið en geltir í hvert sinn sem hún sér hund eða önnur dýr, nema ef það er kisa þá segir hún “tiss tiss” Hún er voða hrifin af dýrum og er sko ekkert hrædd við þau, hleypur á eftir kisunum ef hún kemur auga á þær og beygjir (úff hvernig er þetta skrifað eiginlega??) sig í hnjánum til að kjáa bæði í hundum og köttum ;) Algjör dýravinur!

Hekla í stuði á Hvolsvelli í sumar :haha:  

 

 

Haraldur og Rannveig Katrín byrjuðu að æfa með Fylki í byrjun júlí.  Katrín er búin að taka þátt í tveimur mótum í sumar með Fylki en Haraldur einu.  Það var þriðja mótið hans Haraldar en hann tók þátt í tveimur fyrr í sumar með ÍA.

Haraldur með ÍA strákunum :D

 

Katrín ánægð eftir Símamótið í sumar þó að sigrarnir á mótinu hafi látið á sér standa  :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 20:55:06 / thorunna

Skríðiskríð....

Golfararnir Hulda og Einar voru hjá okkur yfir helgina. Þau fóru ekki á neina golfvelli að þessu sinni, þvældust bara á milli búða og....... nei nei bara djók!  Þau fóru á golfvellinn á hverjum degi, spiluðu svona tvo til þrjá hringi, fóru að sjoppa og sátu svo með okkur á kvöldin!  Takk fyrir komuna Hulda og Einar.  Það var mjög gaman að fá þau í heimsókn. 

 

Man United (nú er maður orðin svo enskur.... farin að nota styttingar og alles) tók við Meistaratitlinum í gær og feðgarnir á heimilinu fjarri góðu gamni. Þeir töldu það víst að þeir yrðu löngu fluttir á klakann áður en þessi leikur yrði spilaður og voru því ekki búnir að tryggja sér miða...... úff þeir voru gasalega svekktir að vera ekki á Old Trafford, en í staðinn sátu þeir fyrir framan imbann (svo sem ekkert nýtt :D)og lifðu sig inn í atburðarrásina!  Þeir eru búnir að vera duglegir að fara á völlinn í vetur og eru þegar farnir að skipuleggja næsta tímabil þó að við verðum öll flutt til Íslands.  

En annars erum við bara farin að telja niður dagana þar til við komum heim, 13 to go!  Nýja heimilisfangið okkar verður Árkvörn 2b í Reykjavík.  Við fáum íbúðina afhenta upp úr miðjum júní.  Náttúrulega skandall að vera ekki að flytja upp á Skaga, en stefnan er náttúrulega sú að vera komin þangað mjög fljótlega!! (...segir Sturri allavega :D).   Til að byrja með verðum við bæði að vinna í Reykjavík og því töldum við besta kostin að byrja í bænum og sjá svo til. 

 

Já og ekki má gleyma henni Heklu litlu, hún er farin að skríða :haha::haha::haha:

 

Hekla var ánægð með frænku sína :haha::haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 18:07:48 / thorunna

Rúllirúll.....

Það er aldeilis orðið langt síðan við blogguðum síðast!  

Við stelpurnar fórum í messu í Grimsby á sunnudag. Sr. Sigurður sendiráðsprestur í London kom og blessaði okkur íslendingana hérna í norðrinu.  Kristófer Þór sem býr ekki langt frá okkur var fermdur, setti það hátíðlegan blæ á messuna. Feðgarnir voru fjarri góðu gamni, pabbinn á Íslandi og Haraldur jr. í afmælisboði á KC-Statium með vini sínum honum Ryan. Þeir sáu Hullarana taka á móti Plymouth, þetta var síðasti leikur tímabilsins. Því miður töpuðu okkar menn leiknum 2-1 en það er  í lagi því að þeir voru búnir að tryggja sér áframhaldandi sæti í deildinni!

Heklu leiddist ekki í messunni, þarna voru fullt af stelpum sem voru duglegar að gefa henni rúsínur og annað góðgæti :haha::haha:

 

Nú er Hekla að verða 11 mánaða. Hún er orðin algjör tætirófa, gramsar í öllu sem hún nær í og étur allt sem á vegi henni verður hvort sem það er pappír eða annarskonar góðgæti.  Hún er ansi dugleg að ferðast um húsið þó að hún sé ekki enþá farin að skríða. Hún Hekla veltir sér nefnilega um öll gólf, festist svo stundum undir stólum en þá notar hún ágætis tækni til að losa sig en það er að öskra og æpa þar til einhver nærstaddur kemur og losar hana úr vandræðunum!

Hann er ótrúlegur hraðinn á henni á rúlliríinu :haha:

 

Gripin... Þarna munaði ekki miklu að hún fengi sér smá smakk!!  

 

....og svona aðeins í lokin :P   

Ísbíllinn frægi!! Eins og þið sjáið er hann farin að leggja í hlaðinu hjá okkur!! Við hljótum að vera uppáhalds kúnnarnir J


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 21:48:50 / thorunna

Slípóver :)

Ísbíllinn kemur reglulega í heimsókn og þið ættuð að sjá hraðan á honum Haraldi þegar hann heyrir í ísbílabjöllunni!!  Þó að hann sé niðursokkinn í FIFA 07 (play-station) eða í garðinum að spila “mjög mikilvægan leik” , þá stekkur hann á fætur, æpir svo undir tekur í húsinu:  “ÍÍÍsbíllinn er að koma, drífið ykkur!!!”, á leiðinni út gramsar hann einhverja peninga úr skúffunni í eldhúsinu og verslar sér ís.  Hann kaupir reyndar ís fyrir alla fjölskylduna...... engin skilinn útundan nema kannski Hekla ;)

 

 

  Feðgarnir fóru til Manchester í gær. Þar hittu þeir Skagamenn, áhöfnina af Höfrungi III, og fóru að sjálfsögðu á leik Manchester-Middlesbrough, þeir voru ekkert rosalega glaðir með úrslitin 1-1. En það glaðnaði heldur betur yfir þeim í dag þegar Chelsea gerði markalaust jafntefli við Newcastle  J .  Það er þá ekki útilokað að þeir í Mansésterbæ hrifsi titilinn á endanum.  

Við stelpurnar vorum heima og reyttum arfa og bættum mold í beðin J .  Lísa vinkona hennar Katrínar kom svo í heimsókn og fengu þær að gista saman í gestaherberginu á loftinu ;) svaka gaman, það átti reyndar að vera kósíkvöld hjá okkur í gærkvöldi en þar sem DVD-spilarinn bilaði L og engin almennileg bíómynd var í sjónvarpinu fórum við bara í bólið með góðar bækur og lásum aðeins fyrir svefninn J

Katrín og Lísa með "uuuppáhalds" bangsana sína :haha: 

 

Haraldur fór í morgun að keppa, kepptu tvisvar við sama liðið, þeir unnu fyrri leikinn en töpuðu þeim seinni. Hér sést Haraldur taka víti í vítakeppninni, einbeittur strákurinn J Hann setti hann í bláhornið náttúrulega í vítinu.  

Við drifum okkur á róló eftir fótboltann. Heklu finnst alltaf jafn gaman að róla. Takið eftir hvernig hún heldur sér í róluna. Svona finnst henni best að vera ef ég reyni að laga hana verður hún ösku reið og grætur stórum fílatárum!!   

 

 

Haraldur fékk svo skveringu fyrir svefnin!! Ekki veitti af!! Látum myndirnar tala:

Fyrir og eftir!!

 

 

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 21:36:23 / thorunna

Brakandi blíða :)

Veðrið er búið að vera frábært um helgina, 22-24 stiga hiti, sól og blíða!!

Hekla og Haddi í garðinum, Rannveig Katrín var hjá Lísu vinkonu sinni.

 

 

 

Hekla æfir sig að skríða meðan pabbinn sópar í blíðunni í dag 8)8)

 

 

 Hvað er hægt að gera við súkkulaði-sýki??  Páskarnir voru varla búnir þegar húsfreyjan datt svona svakalega í páskaeggin, ekki páskaeggið heldur páskaeggin því þau voru jú nokkur á heimilinu. Gestirnir (Erna og Haddi) voru ekki einu sinni “seif” með sín egg! Húsfreyjan bara gleymdi sér og vissi ekki af sér fyrr en allt súkkulaðið var hrokkið ofan í hana! Haddi Har var fljótur að greina átsjúku mágkonu sína og sagði að ekki léki nokkur vafi á að hún væri haldin “búlimíu-alsæmer” sýkinni. Þ.e. að maður étur og étur en gleymir að æla..........    En onistlí... ef einhver veit um góðan dáleiðara eða veit af góðri meðferð handa súkkulaðifíklum látið mig endilega vita!

 

 Annars áttum við fjölskyldan og Haddi frændi bara alveg yndislega páskaviku.  

 

Við mæðgurnar, ég og Erna, fórum til London á Skírndag. Átti þetta að vera svona shopping-tourist dagur. Það átti sem sagt að byrja að sjoppa svolítið og fara svo í skoðunarleiðangur um Lundúnaborg.  Þið getið svo sem sagt ykkur sjálf hvernig ferðin endaði.......... Sjoppiríið dróst náttúrulega dálítið mikið yfir skoðunarleiðangurstímann og á endanum var skoðunarleiðangurstíminn orðin ansi knappur. En við ætluðum sko alls ekki að sleppa honum því ekki vildum við vera þekktar fyrir það að hafa verið bara á Oxford street! Þegar við vorum komnar hálfa leiðina að Piccadilly Square uppgötvaði Erna skvísa að það vantaði töskuna hennar....  Hún lagði hana víst frá sér þegar hún var að máta og að sjálfsögðu var taskan ekki á sínum stað þegar við komum til baka í búðina.  Þannig að við enduðum á lögreglustöðinni, gáfum skýrslu og héldum af stað heim á leið....  leiðinlegur endir á annars frábærum degi.

Stund á milli búða! Gáfum okkur smá stund til að setjast niður og hlaða batteríin :lol:

 

 

 Föstudagurinn Langi var algjör letidagur enda mæðgurnar með verki upp að hnjám eftir allt búðarrápið á Oxford! 

 

 

Á laugardeginum fórum við Erna, Haddi frændi, Rannveig Katrín og Hekla að skoða páskana í York. Feðgarnir Haraldur og Sturlaugur voru eftir heima, annar slappur og hinn að læra!  Alltaf gaman að koma til York.

Haddi, Erna og Rannveig Katrín fyrir utan kirkjuna stóru í York.

 

 

 Strákarnir fóru síðan á leik á Old Trafford í vikunni þar sem Manchester United tók Roma í bakaríið, 7-1.  Þetta var víst svaka fjör.  Erna greyið var dálítið súr að vera farinn heim þegar þessi leikur var, hún er nefnilega dálítið skotin í Ronaldo.  Alltaf þegar Haddi litli sér Ronaldo í sjónvarpinu þá kallar hann á Ernu; “Erna, Ronaldo er í sjónvarpinu það var alveg sýnt full face!” Fríið leið alltof hratt, áður en við vissum af voru Erna og Haddi farin og skólarnir hjá krökkunum byrja svo á þriðjudag. Einn dagur eftir af fríinu ;)  

 

Hekla og Katrín í fínu kjólunum frá Möttu frænku :haha: 


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 22:20:04 / thorunna

Gleðilega Páska :)

Gleðilega páska öll sömul!   Samviskan var aðeins að trufla mann í morgun þegar við fjölskyldan og Haddi frændi brunuðum af stað í stærsta skemmtigarð Bretlands, Alton Towers, á sjálfan páskadaginn!  Aldrei þessu vant fengu páskaeggin að bíða og engin páskasteik í ofninum. Samviskubitið hvarf samt fljótt og áttum við frábæran dag í blíðskapar veðri. Það var svolítið skondið að þegar við vorum að leggja bílunum fyrir utan garðinn koma ekki nema Skagamennirnir Gunnlaugur, Dóra, Arnar og Bjarki og fjölskyldur og leggja við hliðina á okkur! Lítill heimur!  

 

Það kemst enginn með tærnar þar sem þær bresku hafa hælana!!! Við Erna gátum ekki stillt okkur og tókum mynd af skvísunum!   

Eins og máltækið segir "Less is More" Þær taka það greinilega mjög alvarlega ;)

 

 

Það var nú ekki alveg svona hlýtt þó að veðrið væri gott! Þessar voru þó frekar vel klæddar miðað við margar aðrar skvísur á svæðinu 8)8)

 

 

 

 

Haddi frændi og Rannveig Katrín stóðu sig vel á bátnum, keyrðu aðeins svona sex sinnum á staura sem voru að þvælast fyrir þeim um allt vatnið :haha:

 

 

 

 

"Þetta var svakalega létt......" Sagði Haraldur um ökuskólann.  Katrín sést þarna í baksýn á rauða bílnum  :)

 

 

 

 

En hetja ferðarinnar er enginn önnur en Hekla :haha::haha:

Lang flottust!  Sat sæl og glöð í kerrunni allan tímann og sýndi öllum sem vildu nýju fínu tennurnar :haha::haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 22:42:16 / thorunna

Skógarferð í sumarblíðu!

Erna og Haddi frændi komu til okkar á mánudagskvöld.  Miklir fagnaðarfundir urðu hjá systkinunum, þau höfðu ekki hist síðan í janúar!  Þau Erna og Haddi komu með þessar fínu sendingar frá ömmunum og öfunum á Skaganum, páskaegg og íþróttaföt. Þökkum kærlega fyrir okkur!

Sumarstællinn í ár!! Krakkarnir í fínu göllunum frá afa og ömmu á Vesturgötunni.

  

Það er ekki hægt að blogga nema að minnast aðeins á veðrið. Í dag ríkti sannkölluð sumarblíða. Núna er sumarið komið (7 9 13 bank bank). Og ekki er spáin á verri endanum fyrir næstu daga 16-18 stiga hiti ;) ekki slæmt það.....

 

  

Við Erna, Haddi og Katrín drifum okkur í skógarferð í dag og buðum nágrönnum okkar þeim Ellie og Sophie með. Við fórum í skóg sem er hérna rétt hjá, höfðum með okkur nesti og bjuggum til trjá-hús J   Að vísu kláruðum við ekki húsið eða tjaldið eins og krakkarnir kölluðu það, því þegar við (við Erna) vorum búnar að setja nokkrar trjágreinar í húsið urðum við varar við þessar líka skemmtilegu verur sem voru búnar að koma sér vel fyrir bæði innan í greinunum og utan á þeim......... jekk.... þetta voru trjálýs... allt að 2 cm langar og ½ cm breiðar með kúpta skel, svartar á lit....... oj oj mig bara byrjar að klæja við tilhugsunina.    

 

Haraldur var sá eini sem þoldi við innan um lýsnar!!

 

Haraldur tók nokkur Break-dans spor áður en við héldum af stað heim :haha::haha:

 

Erna stjórnaði þrautakóng á leiðinni til baka ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 22:34:27 / thorunna

Afmæli Hadda!!

  Afmæli Hadda!   

Haddi gerir sig kláran að blása á kertin.

 

Það er aldeilis að tíminn líður. Haraldur okkar orðinn 8 ára. Hann átti afmæli í gær. Að hans ósk bauð hann tveimur vinum sínum, þeim Jack og Ryan á fótboltaleik.  Þeir sáu Hull City taka á móti Southend. Okkar menn unnu að sjálfsögðu 4-0.  Eftir leik komu þeir svo heim og fengu sér pizzu og súkkulaðiköku. Vinir okkar Anna, Gústaf, Lára, Hrefna og Lísa kíktu í heimsókn á afmælisbarnið. Haddi var hinn ánægðasti með daginn.

 

Haddi, Jack og Ryan ánægðir með sig á leiknum !

 

 

 Okkar menn fagna þriðja marki Dean Windass (já skemmtilegt nafn), sem er okkar helsti markaskorari, 38 ára og hátt á annað hundrað kíló!  

Hekla fór í vigtun í vikunni og hafði lést um 40 gr. Hún er reyndar búin að vera með renning í 2 vikur sem er reyndar á batavegi núna.  Mömmunni varð svo mikið um fréttirnar af þyngdartapinu að í einhverjum klaufaskap læsti hún krílið inni í bíl L Já og mátti litla snúllan dúsa þar í rúman klukkutíma því að lyklarnir og síminn voru einnig inni í bíl!  Þetta var mikið áfall að uppgötva að stúlkan væri læst þarna inni og ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að vera, var að reyna að vinka henni og sonna.... hún bara brosti til mömmu sinnar og stakk upp í sig þumlinum.  Ég ákvað í ofboði að hlaupa inn í heilsugæslustöðina aftur og hrópaði þar: “Please help me I locked my baby in the car.....” Áfallahjálpin fór strax í gang hjá kerlingunum....... “Calm down, its all right, I see her, she is all right......”  sagði ein hjúkkan og horfði út um gluggann.  Reyndar spurði hún mig hálftíma síðar hvaða bíl ég ætti!!!!  Ég reyndi að sýnast rólegri og hringdi strax í Sturra sem fór í það að leita að varalyklinum. Ég hljóp út aftur og var þá snúllan sofnuð! Það gekk nú ekki þrautalaust að finna lyklana og var haft samband við lögregluna en það eina sem hún gat gert var að brjóta rúðuna......... eftir mörg símtöl hingað og þangað fann Sturri lykilinn og var ein hjúkkan svo almennileg að keyra mig heim til að sækja lykilinn. Þannig að betur fór en á horfðist í fyrstu... 

Erna skvísa og Haddi frændi koma til okkar á morgun, þau ætla að vera hjá okkur yfir páskana. Hlökkum við mikið til að fá þau!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 22:18:34 / thorunna

Tæknilegir örðuleikar..... :(

Ekki veit ég hvað er að gerast á þessari blessaðri blogg síðu!! En ég gerði margar tilraunir í gær að koma inn nýrri færslu. Einhverra hluta vegna lenti hún hér til hliðar (vinstri) sem linkur!! En þið kíkið endilega á linkinn!!!  Afmæli Hadda heitir linkurinn ;)

 Bless í bili 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 22:11:01 / thorunna

Amazing Race........

Ég fór með saumaklúbbnum út að borða á fimmtudaginn. Við ákváðum að prófa grænmetisstað sem við höfðum heyrt af.  Hann heitir Hitchkock og er staðsettur í hjarta Hull, sem sagt í gamla bænum! Þetta virkar þannig að sá sem er fyrstur að panta borð þann daginn fær að ráða hvers lenskir réttirnir eiga að vera. Við vorum því miður ekki fyrstar að panta enn þetta kvöld voru enskir grænmetis réttir á boðstólnum. Þegar við komum á staðinn þurftum við að hringja bjöllu til að láta hleypa okkur inn. Þetta var mjög sérstakur staður. Allskonar skraut á veggjum t.d. dýrahöfuð og myndirnar voru allar skakkar á veggjunum, mjög skemmtilegt ;) Réttirnir voru allir mjög góðir og mátti hver og einn éta eins og hann gat í sig látið og ekki spilltu eftirréttirnir fyrir J

Kata, Óla og ég.

 

 Haraldur er að læra um William Wilberforce (son of Hull) í skólanum þessa dagana og fer bekkurinn hans að heimsækja William Wilberforce house næsta fimmtudag. Fyrir þá sem ekki vita þá barðist Wilberforce fyrir áfnámi þrælahalds. Á föstudaginn var frumsýnd myndin Amazing Grace, hún er einmitt um baráttu Wilberforce. Ætluðum við Haddi á myndina í gær. Við tókum Katrínu með okkur en þegar í bíóið var komið vildi Katrín alls ekki fara á þessa mynd þannig að Norbit varð fyrir valinu. Eftirá var ekki mikil ánægja með myndina og Hadda varð á orði að hann hefði nú frekar viljað fara á Amazing Grace. Þá sagði Katrín: “Ó ég vissi ekki að þetta var Amazing Grace mér heyrðist þið segja Amazing Race.....” 

Katrín fór í afmæli til Williams í dag. Við mættum klukkutíma of snemma..... já hvað haldi´ði klukkunni var flýtt í dag svo að núna erum við klukkutíma á undan Íslandi!!  En við drifum okku á róló á meðan við biðum! Með góðfúslegu leyfi Katrínar má ég  skrifa nokkrar línur úr kortinu sem hún skrifaði til Williams. Utan á kortinu stóð William you are a star! Og inn í kortinu stóð I hope you will run faster when you are six. I hope you will be happy when you run faster. You are a kissing boy. I mean you kiss a lot..... Mér skilst að hann hlaupi frekar hægt og já......humm.....  8|8|8|

Hekla prófaði að róla í fyrsta sinn og var svona líka hrifin :haha::haha:     


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 22:38:17 / thorunna

Snjórinn snjórinn allstaðar.....

Ég held að við hér í Britten höfum fagnað vorinu aðeins of snemma..... í morgun þegar við vöknuðum og litum út um gluggann var allt hvítt!!!  Haraldur og Katrín voru hæst ánægð með þetta.... loksins kominn snjór! “Er þá vetur enþá?”  spurði Katrín skælbrosandi, en varð frekar sár yfir því að ég hafði skilið snjóbuxurnar hennar eftir heima á Íslandi   Það á nú reyndar að hlýna aftur um helgina eða svo segir spáin allavega ;)

 

\"\"

Haraldur og Katrín á leið í skólann í morgun :haha:

 

\"\"Eins og þið sjáið á milli trjána á þessari mynd þá eru laukarnir mínir komnir hálfir upp :lol:

 

Haddi frændi til hamingju með 18 ára afmælið :D

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 22:48:12 / thorunna

Rauðnefjadagurinn, letilíf og mæðradagurinn!

Helgin hófst sem sagt á Red Nose Day.  En þennan dag leggjast allir á eitt hér í Bretlandi og safna fé til handa fátækum í heiminum og öllum þeim sem eiga um sárt að binda. Það var skemmtidagskrá á BBC ONE í tilefni dagsins. Ekki létum við okkur vanta fyrir framan imbann og hlógum og grétum til skiptist. Það tók á að sjá hvað margir eiga það erfitt. 

 

 

Við Katrín fylgdumst með dagskránni en Haraldur var mjög upptekinn þetta kvöld við önnur verkefni. Hann var sem sagt Manager í leik sem hann hafði sett upp í play station. Þetta var stór leikur Manchester-Liverpool.

Sjáum nokkrar svipmyndir.....

 

 

Ekki veit ég hvað allar þessar bendingar þýða, en eins og þið sjáið er þjálfara starfið tekið föstum tökum :) 

Annars hefur verið letilíf á fjölskyldunni þessa helgina, varla farið út úr húsi. Það kom eitthvað bakslag í vorið, rok og rigning og/eða hagl.... þá er nú bara gott að láta fara vel um sig innandyra ;)  

Heklu finnst ekkert skemmtilegra en að fá að leika í herberginum hjá krökkunum!

Það er mothersday í dag. Krakkarnir hafa beðið spenntir eftir þessum degi því í skólanum gera allir krakkarnir kort handa mæðrum sínum í tilefni dagsins. Ég fékk tvö kort í morgun, eitt frá Haraldi og annað frá Katrínu. Haraldur skrifaði skemmtilegt ljóð sem hljóðar svona:

My Mother,  Good worker  Child lover  Fantastic cooker  Mars muncher  Cool shopper  Brilliant hugger  Friday player  Cake baker  Saturday doctor  Special runner  Funny joker  Football player  Great shouter  Bad sleeper  Monday reader  Intelligent Mother 

Katrínar kort hljóðar svona:  Happy Mothersday, I love you mummy because you look after me when I am ill and when we have dinner you do things that I love and when you cuddle me you give so so much love thats why I love you. Love from Katrin. 

Bara snilld, manni vöknaði hreinlega um augun yfir lestrinum. Erna Guðrún gleymdi ekki mömmu sinni og sendi mér þessi líka fínu yngingar krem ;) .....það veitir víst ekki af þegar árin hellast svona yfir mann allt í einu.......8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 22:56:37 / thorunna

Kastalaferð og vorið!

Það er komið vor hér í Britten, ekki spurning!  Laukarnir eru farnir að springa út og það sést í græn lauf á trjánum 8)

\

Haraldur á leið heim úr skólanum á föstudaginn, sjáiði fallegu blómin í baksýn :D

 

Í tilefni vorsins drifum við fjölskyldan okkur að heimsækja Kastala sem er í nágrenni Jórvíkur (York).  

\

Við fórum um hluta byggingarinnar, þann hluta sem er til vinstri á myndinni.

 Byrjað var að byggja Kastalann upp úr 1700 og var byggingu hans ekki lokið fyrr en um 100 árum seinna.  Kastalinn er enn í eigu Howard fjölskyldunnar. Mr. Simon Howard, kona hans og 2 börn búa í Kastalanum.  Við fengum ekki að fara um allan kastalann, gestir fá aðeins að fara um hluta byggingarinnar.  Kastalinn er svakalega fallegur og mikilfenglegur, hátt til lofts og þykkir og miklir veggir.  En ég get alveg ímyndað mér að það sé frekar draugalegt að vera þarna að kvöldi til!! 

Eftir að hafa skoðað Kastalann að innan fórum við í göngutúr um landið í kring og þar var nú ýmislegt að skoða. Mjög skemmtileg ferð.

\

Krökkunum fannst þessi bygging standa upp úr í ferðinni, þetta er Temple of the four winds.  Byggingin stendur við endann á skógi sem tilheyrir kastalanum. Já þetta er mikið land í kringum kastalann. Þarna voru tvo vötn þar sem svanir syntu um, skógur ofl. Mikið var um styttur í garðinum allar af alsberum karlmönnum, skemmtilegt  ;) 

Og svona aðeins í lokin....

Systurnar sætu... önnur safnar tönnum og hin missir þær!  Sést aðeins í Heklu tönnslur :)

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan